Ræktunarbúið Flugumýri


Hrossa Ræktunarbú - FlugumýriMetnaðarfull hrossarækt og mikið úrval af gæðingum til sölu. Flugumýri II byggir að stórum hluta á Ófeigi 882 og gæðingshryssunni Kolskör frá Gunnarsholti sem er máttarstólpi í hrossarækt Flugumýri.

Hestaferðir og Hestaleiga

Hestarferðir og hestaleiga í SkagafirðiFlugumýri er staðsett í “Mekka hestamennskunnar “ Skagafirði. Fátt er skemmtilegra en að ferðast um fallegt landslag á góðum hesti. Á Flugumýri gefst þér tækifæri til að upplifa brot af því besta í hestamennsku, við eigum hesta við hæfi hvers og eins.


Hestasýningar - Sögukynning

Hestasýningar í SkagafirðiÞar sem sagan og hesturinn sameinast.
Hestasýning á Flugumýri er kynning og sýning á íslenska hestinum, þarfasta þjóninum fyrir land og þjóð í aldanna rás. Tekið á móti gestum með kræsingum úr Skagfirsku matarkistunni.

Bændagisting

Gisting í SkagafirðiHerbergin eru snyrtileg og með frábæru útsýni yfir Skagafjörð. Þjónustan er mjög góð, staðsetningin frábær fyrir ferðamenn og stutt í alla þjónustu.
Mjög góður kostur fyrir minni hópa og fjölskyldur.  
0

Hestasýningar á Sumarsælu/ Horseshows on Summer Joy

Sumarsæla í Skagafirði og mikið um að vera á mörgum stöðum í firðinum fagra. Við fjölskyldan á Flugumýri bjóðum uppá „Stefnumót við Skagfirska hestinn“ með reiðsýningu og heimsókn á bæinn, alla daga vikunnar, sem og flest alla daga sumarsins....

Meira »


Glæsilegt Ís-Landsmót á Svínavatni

Frábært Ís-Landsmót var haldið á Svínavatni um helgina og er þetta án vafa stærsta ísmót sem haldið hefur verið með afburða góðum hrossum. Veðrið var frábært, ísinn góður og stóðst dagskráin hjá mótshöldurum og knöpum mjög vel, sem eiga þakkir skild...

Meira »


Skín við sólu Skagafjörður

Nú í byrjun mars er daginn farið að lengja og sólin skín hærra á lofti með degi hverjum. Nú síðdegis hefur sólin vermt með geislum sínum og fjörðurinn skartað sínu fegursta eins og oft áður. Útreiðar ganga því vel þessa dagana í frábæru reiðfæri á...

Meira »