Flugumyri.com » Flýtileiðir2 » Hvað er hægt að gera » Sjósigling og Drangey


Sjósigling og Drangey

Sjósiglingar
Eyjasigling á Skagafirði , einu fegursta hafsvæði Íslands er upplifun út af fyrir sig. Í boði eru siglingar um hin svokölluðu gullin þrjú sem eru Drangey, Málmey og Þórðarhöfði.
Einnig er í boði sjóstangaveiði, eitthvað sem engin má láta fram hjá sér fara.

Drangey
Drangey er af mörgum talin ein helsta náttúruperla Skagafjarðar. Eyjan er ca 180 metrar á hæð og aðeins kleif á einum stað. Eyjan er afar grösug og þar stunda menn fuglaveiðar og eggjatekju, enda var sagt að eyjan væri forðabúr Skagfirðinga þegar sultur svarf að. Eyjan er úr þverhníptu móbergi. Hún er mjög grasgefin að ofan enda var öldum saman flutt fé þangað út til beitar.  Sunnan Drangeyjar stendur einstakur klettadrangur, Kerling. Á hann að vera tröll sem varð að steini. Annar drangur, Karl, var norðan eyjarinnar, hann hrundi í jarðskjálfta 1755.

Drangey er aðeins kleif á einum stað þar sem nefnist Uppganga. Fægust er Drangey fyrir dvöl útlagans Grettis eins og sagt er frá í Grettissögu en Grettir og bróðir hans Illugi voru báðir drepnir í eynni. Svo er talið að þeir hafi flust út í eyna 1028 og dvalið þar í þrjú ár. Grettir synti úr Drangey að Reykjum á Reykjaströnd og sótti eld. Þótti það frækilegt afrek. Drangey lá öldum saman undir biskupstólinn á Hólum og var nytjuð þaðan, en árið 1885 keypti Skagafjarðarsýsla hana. Skáli var reistur í Drangey 1984. Það verður enginn svikinn af því að heimsækja Drangey á sumrin og upplifa Skagafjörð baða sig í miðnætursólinni.

Drangey